| Gunnella's Summerhouse Sumarhús Gunnellu |
||
![]() |
The cover features a house in Stykkishólmur. Gunnella's house is featured on pages 42-44. Hús og Hýbýli House and Home number 239 10 tbl. 2008 Publisher's Web Site English Publisher's Web Site Icelandic |
|
| This is the part of the article that features Siglufjörður and her summer house, and where Gunnella spent her childhood summers. Photos larger below. |
![]() |
|
| Gunnella's Summerhouse Icelandic Text Below |
||
|
On a street named Hólavegur in the village of Siglufjörður there is a cute little house. Gunnella, the artist, stays there during the summer where she paints and enjoys life and Siglufjörður's nature. Hús og Hýbýli visited the artist, who was very busy painting, but not working on her paintings but on her house outside. "My grandmother was from Siglufjörður, my mother grew up here and I spent some time here when I was a child. So I have strong feelings and connections to Siglufjörður and it is always good to come here. The people up here are so nice, and the rhythm of life is so easy and calm, just the perfect atmosphere for painting. There is no stress here," says Gunnella. "This is an old timber house built in 1926 and was renovated with a new panel outside, about a decade ago. When I bought the house I bought it with everything inside, including the furniture and kitchenware. I only needed to bring my toothbrush and my pencils," says Gunnella and laughs. "But since then I have been rearranging the furniture and bringing some new things in, step by step. |
||
| Sumarhús Gunnellu | ||
| Við Hólaveginn á Siglufirði er lítið og krúttlegt hús. Þar dvelur listakonan Gunnella á sumrin, málar og nýtur lífsins í náttúru Siglufjarðar. Hús og hýbýli bankaði upp á hjá listakonunni sem var í óða önn að mála en að þessu sinni ekki myndir heldur húsið sitt að utan. ,,Amma mín var Siglfirðingur, mamma ólst hér upp og ég var hér oft á sumrin sem barn. Ég hef því sterkar taugar til Siglufjarðar og það er alltaf gott að koma hingað. Hér er mannlífið svo rólegt og frábært andrúmsloft til að mála. Stress er ekki til hér,” segir Gunnella. ..Þetta er gamalt timburhús frá árinu 1926 sem var endurnýjað fyrir um það bil áratug síðan en þá var settur panell utan á húsið. Þegar ég keypti húsið þá keypti ég það með öllu, þar á meðal húsgögnum og búsáhöldum. Ég þurfti bara að koma með tannburstann og penslana mína,” segir Gunnella og hlær. ..En svo hef ég hægt og rólega verið að færa húsgögnin til og skipta þeim út eftir þörfum.” Gunnella sækir innblástur í hið íslenska umhverfi og myndefnið er hér allt um kring. ,,Ræturnar eru mikilvægar fyrir okkur Íslendinga, gömlu húsin, ömmur með svuntur og auðvitað íslenska landslagið. Allt þetta ratar í myndirnar mínar á einn eða annan hátt. Stundum keyri ég um og tek myndir af gömlum húsum sem ég nota svo í verkin.” Það er í nógu að snúast hjá þessari vinsælu listakonu en um síðustu jól kom út önnur barnabókin þar sem verk Gunnellu koma við sögu en hún ber nafnið ,,Hvernig konurnar stöðvuðu blásturinn” og er eftir Íslandsvininn Bruce McMillan en hann er bandarískur rithöfundur og ljósmyndari. ,,Hann sá myndirnar mínar á sýningu þegar hann var hér á landi og spurði mig í kjölfarið hvort hann mætti skrifa sögu út frá myndunum. Hann tók síðan ljósmyndir af málverkunum, raðaði þeim saman og samdi sögu í kringum þær,” segir Gunnella en fyrsta samstarfverkefni þeirra var bókin Hænur eru hermikrákur. Árið 2005 var sú bók valin ein af tíu best myndkreyttu barnabókum ársins af New York Times. Frekari upplýsingar og myndir af verkum listamannsins má nálgast á vefsíðunni www.gunnella.info. |
||
|
|
The photos of Gunnella's summerhouse with the article, that were taken July 2008. |
![]() |
![]() |
||
![]() Frá Hafnarfirði / From Hafnarfjordu |
||
| www.gunnella.info | ||